tag:blogger.com,1999:blog-67529627972520809542024-03-08T19:18:19.168+00:00hulduheimar hulduabelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.comBlogger33125tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-76154110702799060402011-06-07T09:57:00.003+00:002011-06-07T10:11:32.652+00:00Að hjóla í Danmörku
Jæja þá hef ég nú smáreynslu af því að hjóla í Danmörku. Við vorum 3 vikur þar og flesta dagana hjóluðum við eitthvað. Við bjuggum lengst af í smábæ við norðurströnd Sjálands. Í fyrstu vorum við með hugmyndir um að hjóla frá Ebeltoft til Álaborgar sem eru um 120 km að mig minnir. Vegna leiðindaveðurs, kulda, rigningar og síðast en ekki síst hávaðaroks, þá hættum við við. Í staðinn hjóluðum við styttri vegalengdir á milli bæjarfélaga og með ströndinni. Engar lengri leiðir, en það var upplifun að prófa að hjóla í þessu landi hjólreiða. Mér kom á óvart hvað hjólastígar og aðstaða til hjóla var ekki eins góð og ég hafði gert mér í hugarlund. Ég hef áður hjólað í Álaborg og þar er stígakerfið ágætt sérstaklega næst miðbænum.
Núna sá ég að hjólaaðstæður eru ekkert svo mikið frábrugðnar því sem gerist hér alla vega hér á höfuðborgarsvæðinu. Sums staðar eru frábærir stígar breiðir og liggja meðfram hraðbrautum og þar er hjólað í báðar áttir og pláss gott. Annars staðar hverfa hjólastígarnir og maður verður að finna áframhaldið alveg eins og hér. Á sumum stöðum eru stígarnir malargötur og mjög mismundandi breiðar allt frá dekkjabreiddinni og að breiðum grófum malarstígum. Víða liggja stíganir alveg með hraðbrautinni og fannst mér ekki alltaf alveg nógu breiðir. Á öðrum stöðum er manni boðið að hjóla í gegnum bæjarfélög eins og t.d. á Arnarnesinu og í Kópavogi, ef viðkomandi er á leið frá Reykjavík til Hafnarfjarðar. Þannig að það er ekkert betra en hér þegar maður verður að taka langan krók á sig til að komast á milli staða.
Það sem virðist vera helsti munurinn á að hjóla í Danmörku og hér er að þar eiga hjólareiðamenn óskoraðan rétt og njóta forgangs mjög víða.
Síðan er annað, all flest hjól sem ég sá í Danmörku og það á við um hjólið sem ég var á, eru 7 gíra eða minna, afar fá eru með dempara á hnakk eða stýri og það á líka við um hjólið mitt. Í Danmörku eru líka brekkur, langar og háar og þar er oft rok. Veturnir eru kaldir þar eins og hér og jafnvel kaldari vegna rakans sem er þar en ekki hér.
Því er það niðurstaða mín, að það er ekkert erfiðara að hjóla hér en þar. Við erum á réttri leið og það eru orðnir margir góðir stígar hér sérstaklega hér á höfuðborgarsvæðinu. Ef það væri gert svolítið átak í að breyta götum þannig að hjól komist betur um þá værum við í mjög fínum málum. Og svo út að hjóla!abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-64479543563322053572011-02-08T22:58:00.002+00:002011-02-08T23:11:57.834+00:00GigtinHún er skrýtin þessi gigt. Ég veit aldrei hvernig hún hagar sér. Mér hefur fundist að ef ég er dugleg að hreyfa mig, hjóla/ganga hafi ég eflst og styrkst og ekki eins viðkvæm og útsett fyrir verkjum. En svo koma svona dagar eins og í dag! Gjörsamlega allt ómögulegt, verkirnir eru útum allann líkamann, helst í liðamótum það er eins og einhver með töng læðist inná liðamót og klípi þar með öllu afli í einhverjar viðkvæmar taugar. Ég get engan veginn verið, þoli ekki úr né hringa eða föt. Langar að liggja í heita pottinum en get ekki með nokkru móti hugsað mér að komast þangað. Það kostar að fara úr fötunum, fara í sturtu og þvo sér, klæða sig í sundföt og slopp og ganga síðan út í kuldann og svo að dýfa sér í yndislega svalandi heitt vatnið. En það gengur ekki því allur aðdragandinn er of mikil áreynsla þegar mér líður svona illa.
Allur skrokkurinn er eins og vatnsfylltur, hendur eru bólgnar og öll liðamót. Það er eins og ég sé með harðsperrur alls staðar. Líðanin líkt og þegar maður er með flensu og beinverki.
Svo stundum koma svona djúpar lægðir og óveður en ég finn ekki neitt? Ég veit aldrei hverju ég á von á! Þetta er afar leiðinlegt ástand, en ég hugsa samt alltaf að þetta gæti allt verið miklu verra. Og svo koma betri tímar fljótlega og ég er orðin svo sterk af hjólatúrunum sem eru svo skemmtilegir og gönguferðunum. Ég veit að ég þyrfti að drífa mig í sund öðru hvoru en það er eitthvað óskaplega erfitt að framkvæma það. Ég veit að sund myndi gera mér mjög gott. Ég var miklu duglegri hér áður fyrr að sækja sundlaugina og ég man vel hve gott það gerði mér, þannig að ef ég bætti sundlauginni við hjólatúrana og göngurnar þá væri ég í nokkuð góðum málum. Ég þarf að æsa mig upp í að langa í sund. Það er eitthvað voða erfitt að koma því inn í prógrammið.abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-55096183267354698052011-02-01T20:57:00.002+00:002011-02-01T21:12:50.296+00:00Hjólreiðar og heilsufarÆtli það séu ekki um það bil 10 ár síðan ég fór að hjóla að einhverju ráði. Ekki mikið fyrstu árin, en stigvaxandi. Nú er svo komið að ég nánast nota ekki bílinn. Fer orðið nánast allra minna ferða á hjóli. Og líkar vel.
Ég hef hugsað undanfarið hvað þetta er einstaklega þægilegur ferðamáti og allar leiðir hér innan höfuðborgarsvæðisins eru stuttar. Að nota hjól sem samgöngutæki almennt er líka hugarfar og þegar maður byrjar þá verður þetta eins konar vani. Manni finnst það fyrirhöfn að ræsa bíl, miklu einfaldara og þægilegra að stökkva á hjólið. Þar fyrir utan sparar maður mikla peninga. En auðvitað tekur það lengri tíma að fara um á hjóli og þá hef ég vinninginn þar sem ég stunda ekki lengur vinnu utan heimilis.
En stóri ávinningur hjólanotkunarinnar er heilsufarið. Fyrir u.þ.b. tveimur árum síðan var ég afar slæm af gigt og átti erfitt með allar hreyfingar, tók lyf við ýmsum hliðarverkunum gigtarinnar, s.s. svefnlyf og fleira. Þar sem lyf og ég hafa aldrei verið miklir vinir tók þetta á að nota lyf og ég barðist alltaf á móti lyfjunum auk þess sem ég finn alltaf verulega fyrir aukaverkunum. Svo smátt og smátt hef ég hætt lyfjanotkun, aukið hreyfingu og þar kemur hjólið inní. Vegna slits í liðum hefur ganga og önnur hreyfing valdið mér vanlíðan og verkjum, en að hjóla er svo mjúk hreyfing að hún veldur litlum verkjum og álagi. Með tíð og tíma hefur styrkur minn aukist, ég þarf aðeins að gæta að því að hafa aldrei þungt álag á hnén og þar koma margir gírar á hjólinu mínu að mjög góðum notum.
Nú hjóla ég 20 km án þess að finna fyrir því, það er nánast eins og upphitun nú orðið og gigtin er miklu miklu mildari við mig en áður. Auðvitað fæ ég mín slæmu köst, þegar lægðirnar raða sér utanum landið og skella sér svo hver á eftir annarri innyfir borg og byggð. Það er ekkert hægt að gera við því, en því meira sem ég hjóla því hressari verð ég. Því betur sef ég og verkirnir minnka.
Um daginn hjóluðum við hjón í Bláa lónir úr Kópavogi og það er ekki hægt að segja að ég hafi fundið fyrir því. Auðvitað þarf ég að hjóla með mínum hraða og ég þarf að stoppa oft til að hvíla. Lykillinn er að verða aldei of þreytt, hvíla heldur oftar og stutt í einu. Og það gengur mjög vel. Þann daginn hjóluðum við 92 km og vorum bara brött á eftir. Ég ætla ekki að reyna að halda því fram að ég hafi ekki fundið fyrir því, en að ég væri búin á því eins og ég átti satt að segja von á, það var fjarri lagi.
Svo framundan eru bjartari dagar og hlýrri, smátt og smátt og þá verður lagt í lengri hjólatúra eftir því sem veður og vinar leyfa. Og ef allt fer eins og áætlað verður lagt af stað í hringferðalag á hjólunum þegar sól er hæst yfir Íslandi og sest ekki allann sólarhringinn:-) Ég hlakka mikið til.abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-84958620460320929342010-11-26T15:09:00.002+00:002010-11-26T15:23:15.508+00:00HjólreiðarJæja, það er margt sem veltist í huga mér þessa dagana. Við hjón höfum hægt og bítandi aukið notkun hjólsins sem farartækis í þau erindi sem við höfum hér og þar.
Ég held að ég hafi byrjað í kjölfar átaksins "hjólað í vinnuna" að nota hjólið meira. Fyrst þótti mér þetta mikið afrek að hjóla í vinnu ca 6 km leið og fékk mikið hrós og undrunarhróp frá samstarfsfólki. Eftir mjaðmaskiptaaðgerðir á báðum mjöðmum leið nokkur tími þar til ég fór aftur að hjóla, en nú eftir að ég hætti að vinna er ég komin á fullt.
Og ég hjóla orðið flest sem ég þarf að fara. Ég hef tamið mér að fara nokkrar ferðir útí búð í viku og þá á hjólinu í staðinn fyrir eina ferð á bílnum. Smám saman þá er einhver innri hvati sem dregur mig að hjólinu og láta bílinn hvíla sig.
Við hjón hjólum mikið saman sérstaklega eftir að lítil vinna var hjá bóndanum og það er auðvitað miklu skemmtilegra. En það sem mér finnst vera að sannast á mér, er hvað þessi hreyfing og útivera er holl. Ég hef í mörg ár verið slæm af vefjagigt og slitgigt. Það er ekki langt síðan ég hélt að ég væri að fara í aðgerð á hné, var afar slæm og gat varla gengið fyrir verkjum og vanlíðan. Ég var alltaf tilbúin með verkjalyf og ég hef lengi átt við svefntruflanir að stríða, þannig að ég vakna við hvað sem er og næ ekki að sofna aftur.
Það er skemmst frá því að segja að sjúkraþjálfari hjálpaði mér verulega með hnéð með æfingum og geislum, en framhaldið hefur verið mitt. Það að hjóla og ganga hefur haft verulega góð áhrif. Svo ég finn ekki lengur til í hné, geng 10 km án vandamála fyrir utan að hjóla um 20 km og nætursvefn er sætur og góður án lyfja.
Ég trúi orðið alveg á að þetta sé málið. Ef maður finnur til einhversstaðar, þá er að hreyfa það og ganga eða hjóla og halda bara áfram, kannski ekki ef maður fótbrotnar eða þannig:-)
En líf mitt er gleðilegra með hjólinu.abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-66193905770909076342010-10-13T11:22:00.002+00:002010-10-13T11:35:20.211+00:00HjólahugleiðingarJæja enn er haustið svo milt að það að fara ferða sinna á hjóli er lítið mál. Ekki það að mér finnst það meira og minna lítið mál að hjóla, það er skemmtilegt og auðvelt.
Ég fæ ótrúlega mikil viðbrögð á þennan ferðamáta minn, fólk á ekki orð yfir hve dugleg ég sé. Það er alveg sama þó ég segi að það sé miklu auðveldara að hjóla heldur en fólk almennt heldur. Ég reyni að hjóla allt sem ég þarf að fara. Til dæmis hef ég tekið uppá því að fara oft í viku í Bónus og kaupa bara lítið í einu, svo ég geti auðveldlega flutt það á hjólinu, í stað þess að keyra einu sinni og gera stórinnkaup.
Einnig hjóla ég tvisvar í viku niður í Ármúla í jógatíma. Fólkið sem er með mér þar allt konur á svipuðu reki og ég, eru alveg undrandi á þessu og hætta aldrei að hrósa mér fyrir þetta. Það er ekki leiðinlegt, en ég reyni alltaf að segja þeim hversu auðvelt þetta sé. Ég tala samt alveg fyrir tómum eyrum, fólki finnst þetta vera eitthvert óskaplegt átak.
Ég held stundum að við íslendingar séu mestu aumingjar. Þar sem ég hef á undanförunum árum farið oft til Danmerkur og það á öllum árstímum, sumar, vetur, vor og haust, þá hef ég séð að þar er þetta ekki svona, fólk á öllum aldri notar hjólið til að komast á milli staða og það er sama á hvaða árstíma það er eða hvaða aldur er á fólki. Fólk yfir áttrætt notar hjól þar. Og það er ekkert bara blítt og gott veður í Dk, t.d. er vetrarveðrið þar oft verra en hér, miklu kaldar vegna rakans sem er miklu meiri en hér. Mér hefur aldrei orðið eins kalt eins og í Danmörku. Og það er líka rangt að þar sé allt slétt og fellt. Það er það alls ekki, þar eru líka brekkur og bara verulegar t.d í Álaborg þar sem ég þekki best til. Þetta hefur engin áhrif í Danmörku, fólk notar hjólin þar. Stóri munurinn er hve vel er gert við hjólareiðafólk þar. Þar er gert ráð fyrir hjólandi fólki og allst staðar eru standar fyrir hjól, en það er leitun að slíku hér á landi, t.d. við verslandir og stofnanir. Meira að segja við hjólabúðir eru ekki standar! Hvað þá að almennilegt "vegakerfi" sé til hér á landi.
En á Íslandi hefur alltaf verið viðkvæðið að veðrið væri svo vont að við yrðum öll að eiga bíla. Árni Sigfússon, hinn frægi bæjarstjóri í Reykjanesbæ, sagði einhvern tímann að bíllinn væri fyrir okkur íslendinga eins og kápan hjá fólki í útlöndum. Hér væri ekkert hægt annað en að komast allt á bíl og uppað dyrum alls staðar! Þvílíkt bull.abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-52495786401835947792010-09-20T10:26:00.003+00:002010-09-20T10:44:47.391+00:00TrúÉg var í sumarbústað um helgina með trúuðu fólki. Eins og gjarnan vill verða fer slíkt fólk að tala um trúna og þar sem þetta fólk vissi af trúleysi mínu, "sendi það mér tóninn". Í þeirri orðræðu var minnst á að fólk sem ekki tryði, teldi sjálft sig vera æðstu verur heimsins. Ég þagði eins og venjulega í slíkum aðstæðum, því það leiðir oftast til leiðinda að ræða þessi mál, þegar mikil sannfæring er annars vegar.
Ég fór síðan að velta þessu fyrir mér í morgun. Ég hef aldrei sett í orð trúleysi mitt og ég hef ekki upplifað mig sem æðri veru, æðri en aðrir þeir sem á jörðinni eru eða í alheiminum. En þannig vildu viðmælendur mínir setja mig fyrir sér. Að við lítum á okkur sem æðstu verur. Þannig hef ég aldrei séð mig í samhengi við heiminn. Ég er bara hér, hluti af öllu hinu nú um stundir (reyndar afar stutta stund) og reyni að gera það eftir bestu getu og vitund hverju sinni.
Ég held að ég hverfi héðan eins og hin "dýrin" og þar með sé það búið. Það er ekkert endilega óskastaðan, en ég get bara ekki trúað öðru.
Mér finnst ég vera hluti af þessu lífi, sem kviknar og þróast í gegnum aldirnar, breytist eftir aðstæðum og umhverfi og hverfur svo og nýtt kemur í staðinn.
Einhvern veginn svona hugsa ég þetta, ég hef aldrei velt þessu mikið fyrir mér, en með árunum orðið afhuga kristinni trú sem og annarri guðatrú. Ég get alveg tekið undir mörg orð þeirra spámanna sem menn nota til vitnis um að guð sé til. Kristur, Múhameð, Búdda og fleiri og fleiri. Þá eru það orð um hvernig beri að lifa þessu lífi samferða ólíku fólki og öðrum dýrum. En trúin á guðinn hefur horfið hægt og bítandi og ég hef satt að segja aldrei alveg skoðað hug minn, en fór til þess nú þar sem mér fannst ósanngjarnt að mér væri ætlað að telja mig æðri og skil það ekki.abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-41710861408760385082010-06-27T00:56:00.002+00:002010-06-27T01:09:21.251+00:00Evrópubandalagið og ÍslandMig langar til að Íslendingar haldi áfram með umsókn í Evrópubandalagið. Ástæðan er að megninu til vegna þess að mig langar að sjá og heyra hvað það myndi fela í sér. Ég er ekki sammála þeim háværu röddum sem vilja draga umsóknina til baka. Ég vil einmitt og tel nauðsynlegt að við förum í gegnum þetta ferli og fáum að sjá hvaða kostir og gallar fylgja inngöngunni.
Ég held að það sé svo um miklu fleiri en mig að vita hreinlega ekkert hvað innganga þýddi fyrir land og þjóð. Ég held að þjóðin hefði mjög gott af því að fara í gegnum þessa umræðu og þannig skoða kosti og galla. Ég held líka að ef við förum í þetta bandalag að þá verðum við að hlíta ýmsum lögum og reglum, sem við (stjórnmálamenn og embættismenn) höfum ekki hirt um að fara eftir hingað til. Svo sem reglur um mannaráðningar við æðstu embætti landsins.
Ég held að myntin okkar sé að flækjast fyrir okkur, að þetta litla myntkerfi sem við höfum sé of lítið og að stjórnmálamenn geti notað litlu krónuna okkar sér í hag og okkur litla fólkinu í óhag. Það er einhver pólitík að halda í krónuna, einhver furðuleg eiginhagsmuna pólitik. Ég held að með því að komast inní stærra myntsamfélag verði miklu erfiðara að hræra með fjármálamarkaðinn og að þá komist raunverulega ró á samfélag okkar. Þá geti stjórnmálamenn ekki lengur ráðskast með okkur þegnana eins og hverjar aðrar strengjabrúður.
Ég held að við ættum að fara í aðildarumsókn, ræða kosti og galla og taka upplýsta ákvörðum. Ekki láta stjórnmálastéttina segja okkur hvað okkur sé fyrir bestu. Það hefur ekki reynst okkur vel á seinustu öldum.abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-15000519321456655532010-05-06T21:39:00.002+00:002010-05-06T21:48:28.997+00:00Kreppan og réttlætiðÞað hafa verið langir og erfiðir mánuðir undanfarið. Veturinn hefur verið langur og einhver undirtónn í öllu. Reiði og leiði vegna þess óréttlætis sem þjóðin hefur orðið að sitja undir, liggur alls staðar undir.
Í dag las ég góða grein eftir Þorvald Gylfason, ekki þá fyrstu, en þar talar hann um svokallaða pólsku aðferð til að ná fram réttlæti. Sú aðferð byggir á því að stjórnarherrar fyrri tíma sem skömmtuðu sér betri líffeyri til elliára en almennt viðgengst, yrðu sviptir þeim fríðindum. Fríðindum sem þeir skömmtuðu sér sjálfir og eru margfalt hærri en það sem hinn venjulegi maður getur átt von á.
Þorvaldur leggur til að þessi aðferð verði farin hér og þá gildi það um þá ráðamenn sem hófu sukkið, hrunið, spillinguna og valdníðsuna sem viðgengist hefur hér um árabil. Ég mæli með þessu og tel að það gæti verið skref í réttlætisátt.
Nú er loksins farið að handtaka þá menn sem við öll teljum að hafi farið glæfralega með þá ábyrgð sem þeim var sýnd. Nú getum við ef til vill farið að trúa því að réttlæti sé til í okkar samfélagi. Það er ekki slæm tilfinning:-)abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-75265233628190809802010-03-04T15:22:00.002+00:002010-03-04T15:31:32.570+00:00Vor vor vorAllir árstímar eru skemmtilegir fyrir minn smekk. Á haustinn hefur rómantíkin völd, þá fer fólk að kveikja ljósin aftur og kertaljósin sem setja svo róandi svip á allt. Þá er uppskeran, ber og ávextir og grænmeti og undirbúningur fyrir veturinn. Slátur og svo framvegis. Veturinn hefur jólin. Jólin sem gera það mögulegt að þrauka langa, dimma, kalda vetrardaga. Jól okkar norrænna manna sem fagna því að jörðin hefur sig aftur í átt til sólar fyrir okkur á norðurhvelinu. Vorið er síðan það allra mest spennandi. Það er endalaus tilhlökkun sem kviknar við það að sólin hækkar og hækkar á lofti fyrst hægt en síðan hraðar og hraðar og birtan tekur völdin. Gróðurinn tekur við sér og mannfólkið kíkir eftir því hvort þessi eða hin plantan komi nú ekki örugglega upp, hvort hún hafi ekki lifað þetta af. Síðan er það sáning fræja og ótrúin á að þetta verði nú eitthvað, klipping trjáa og runna, útivera. Já vorið er yndislegt, svo yndislegt.
Þórbergur Þórðarson sagði að skammdeginu lyki þann 10. mars, við ættum að gera þann dag að hátíðisdegi. Ég ætla að gera þann dag að hátíðisdegi í framtíðinni. Baka pönnukökur eins og þeir gera fyrir vestan og norðan þegar sólin sést í fyrsta sinn á vorin. Já, vorið er yndislegt.abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-77854047202647360322010-01-28T09:24:00.002+00:002010-01-28T09:27:27.616+00:00Framhald..Nú er verulega gengið á te forðann minn, sem ég týndi s.l. sumar. Ég sé að ég verð að vera aðeins duglegri en í fyrra og nú veit ég betur hvað ég vil og hvar ég næ í það. Svona gengur það, maður byrjar á einhverju, kann það ekki en ef maður heldur áfram að þreifa fyrir sér, þá kemur þekking og hlutirnir ganga betur.
Mikið hlakka ég til vorsins og í næstu viku byrja ég að kíkja á tréin. Þarf að útvega mér langar klippur, ef einhver veit hvar maður fær svoleiðis (lánað eða keypt), þá endilega láta mig vita.abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-90022858206122028592010-01-28T09:14:00.002+00:002010-01-28T09:24:14.990+00:00Ilmur af vori!Veðurblíðan hefur sérstök áhrif á fólk þessa dagana. Þessi endalausa blíða gerir það að verkum að mig er farið að klæja í fingurna eftir vorverkunum. Birtan sem er nú 2 tímum lengur en um áramótin hefur líka sín áhrif. Nú er að renna tími trjáklippinga og þar þarf ég nú heldur betur að taka til hendinni. Ég þarf að skera verulega niður lerkið fyrir norðan hús, en garðyrkjufræðingur sagði að það gæti losað mig við óværu sem hefur gert lerkinu lífið leitt. Síðan eru það öll hin trén, einnig þarf ég að rífa upp með rótum þessar gljávíðisplöntur sem eftir eru og ekki hafa náð að jafna sig á sveppasýkingu. Nú eru komin hátt í 10 ár síðan þessar plöntur sýktust og sama hvað ég hef reynt þær verða bara ljótari og ljótari. Svo nú verður þeim fórnað.
Ég fékk frábæra gjöf frá bróður mínum í afmælisgjöf, gjafakort í garðyrkjustöð. Svo nú er ég að velta þessu fyrir mér fram og til baka, hvað á ég að fá mér. Garðurinn er nógu stór svo það verður spennandi að velja eitthverja fína plöntu.
Ég er einnig farin að undirbúa (í huganum) forsáningu matjurta, blóma og svo kryddjurta. Það þarf að huga að góðum stað til að koma þessu til, þar þarf að vera bjart og aðgengilegt. Hefði alveg viljað vera komin með gróðurhús, ha ha ha, mikið vill meira!
Nú er verulega gengið á teforðann minn, sem ég týndi í hinni gabelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-71329496390931478622010-01-07T05:42:00.002+00:002010-01-07T05:50:58.987+00:00Árið 2010Árið 2010 komið og ég sem trúði því ekki sem barn að ég ætti eftir að lifa aldamótin. Árið 2000 var í slíkri órafjalægð að það var erfitt að ímynda sér að maður ætti eftir að upplifa það. Þá töluðum við vinkonurnar um hvernig heimurinn yrði árið 2000, það var mikið tækniundur sem við sáum fyrir okkur. Allt átti að vera hægt og maður átti að geta flogið svona sí svona, án flugvélar.
En nú er 2010 komið og enn lifi ég og tæknin ekkert svo ofsalega mikið framar en þegar ég var barn. Mest eru það tölvurnar, þær sá maður ekki fyrir og netið og farsímarnir. En lífið heldur áfram og nú erum við Bjarney dóttir mín farnar að setja okkur í stellingar fyrir hjólaferð í júli eitthvað um Vestfirðina.
Verkefnið er að ákveða dagsetningar og finna gististað þaðan sem við getum tekið hjólatúra út frá. Ég held það verði ævintýri að hjóla á þessu fallega svæði og ég held að þar geti verið kyrrð sem ekki verður upplifuð á mörgum öðrum stöðum.
Við Bjarney erum að vona að einhverjir fleiri hafi áhuga, nennu og getu til að slást í för með okkur, sumir til að hjóla með í lengri eða skemmri tíma, aðrir til að sjá hvernig gengur og vera með okkur á gististað og einhverjir til að kippa trússi með sér fyrir okkur.
Eitt er víst, þetta verður gaman.abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com5tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-40865124036817780862009-11-18T19:38:00.002+00:002009-11-18T19:49:25.817+00:00Ótrúlegt veður undanfarið hefur gert það að verkum að jólaskapið bíður örlítið lengur. Ég gæti alveg hugsað mér snjó til að fá meiri jólatilfinningu. En það er nú alveg nægur tími enn. Ég er þessa dagana að taka gestaherbergið í gegn, pússa, spartla og mála gluggann, hvítta panelinn, mála ofninn og síðan að kaupa parkett og leggja. Herbergið verður mikið breytt eftir þetta þar sem panellinn var farin að dökkna mikið. Það verður munur fyrir dönsku fjölskylduna að gista þarna yfir áramótin.
Nóvember, einn enn afmælismánuðurinn er senn að líða og bara 3 afmæli eftir. Það er auðvitað gaman að hittast í afmælisveislum hvert hjá öðru, en það er svo skrýtið með þessa fjölskyldu mína að fæðingar hafa raðast á nokkra mánuði, en síðan koma aðrir mánuðir þar sem engin á afmæli, þannig eru 6 afmæli í ágúst, 7 í september og 5 í nóvember. En þetta er nú allt ánægjulegt og gott.
Vegna þessa yndislega veðurs þá auðvitað verður veturinn miklu styttri, ef hægt er að segja svo. Það er miklu léttara þegar veðrið er svona blítt. Samt hefur mér alltaf þótt gaman að fá stórbyl og óveður, mér finnst gaman að klæða mig út og ganga í stórhríð og blindbyl, en slíkt veður kemur varla orðið meir.
En þetta er ágætt.abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-21583163717117282352009-11-04T20:14:00.002+00:002009-11-04T20:21:18.937+00:00Ilmur af jólumÉg veit að enn er langt til jóla, nóvember rétt að byrja, en nú þarf ég að fara að baka írsku jólakökuna mína og þegar fer að dimma svona mikið þá kemst ég ósjálfrátt í jólaskap. Ég ætla að fara að finna seríur og setja í gluggana. Það er svo notalegt í öllu myrkrinu.
Nú hef ég skipulagt smá jólahlaðborð með afkomendum mínum og hlakka verulega til þess. Við ætlum að borða góðan mat og síðan ætlum við að prófa að skera út í laufabrauð og steikja. Þetta verður reglulega skemmtilegt.
Í ár verðum við heima á jólunum og síðan koma danirnir okkar milli jóla og nýjárs og verða yfir áramótin. Það er ávallt sérstakt að fá að hafa alla fjölskylduna saman, þar sem einn meðlimurinn er búsettur í útlöndum, er það sérstakt þegar við náum öllum saman og það líkar mér mjög vel. Ég er svo einstaklega heppin í þessu lífi að eiga svo einstök börn og afkomendur þeirra og makar ekki verri.abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-75639879724035604102009-07-10T10:08:00.002+00:002009-07-10T10:21:22.819+00:00Á ferð um landið bláaVið erum komin heim eftir yndislega 10 daga ferð um landið með "nýja" tjaldvagninn okkar. Ferðin var hreint dásamleg, næstum alltaf gott veður og fegurð þessa lands er mikil, það eitt er vist. Við vorum að mestu á norður og austurlandi, skoðuðum marga eftirminnilega staði, bæði söfn og svo bara landið sjálft.
Ég er nokkuð hugsi yfir tjaldstæðunum þó, það kostar mismikið að nota þau, frá því að kosta ekkert á minni stöðunum, þar sem ágæt aðstaða er samt, klósett og vaskar, rennandi vatn (kalt) og uppí 900 kr fyrir manninn þar sem það var dýrast. Þetta var á Egilsstöðum, en þar fannst mér aðstaðan verst. Tjaldsvæðið sjálft er afleitt, allt í þúfum, blautt (enginn rigning) og subbulegt og óhirt, bæði svæðið sjálft sem og borð og bekkir. Annað uppá teningunum bæði á Höfn sem og á Krikjubæjarklaustri, en þar er allt til mikillar fyrirmyndar. Ágætt á Vopnafirði og einnig á Djúpavogi.
Það sem hafið mikil áhrif á mig var setning sem ég las og höfð er eftir Gunnari Gunnarssyni. Við komum við á Skriðuklaustri sem er safn um Gunnar. Á einum veggnum hafði verið komið fyrir brotum úr bókum hans og þar var þessi gullvæga setning, sem ég hef oft verið að reyna að setja fram í mörgum orðum. Því miður get ég ekki haft setninguna eftir orðrétt, því ég skrifaði hana ekki upp, en hún hljómar eitthvað svona; " enginn íslendingur getur verið fjarri hvíta landinu án þess að bíða af því skaða á sálinni". Eitthvað svona hljómaði þessi setning, en ég hef oft verið að reyna að lýsa því hvað mér finnst útrásarvíkingarnir hafa fengið makleg málagjöld, sem er útlegðin frá landinu sínu. Ég held að það sé þyngsta refsing sem íslendingur getur fengið!abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-16058057285639499982009-06-13T16:23:00.002+00:002009-06-13T16:28:44.676+00:00JurtatínslaFór í dag í sérlega skemmtilega ferð suður með sjó að tína lækningajurtir með grasalækninum Ásdísi Rögnu Einarsdóttur. Það var góð þáttaka í þessa ferð og lagt af stað frá Keflavík í þurru og skemmtlegu veðri.
Við fórum á þrjá mismunandi staði að tína grös (jurtir) og síðan úrbjuggum við okkur te sem við síðan hresstum okkur á í ferðalok. Þrátt fyrir smá rigningu öðru hvoru var þetta yndisleg ferð, fróðleg og skemmtileg. Ásdís Ragna er einstaklega skemmtileg og lífleg ung kona sem kom sinni þekkingu skýrt og greinilega á framfæri. Hún býr yfir mikilli orku og jákvæðni sem smitar til samferðafólksins.
Hlakka til að mæta aftur að ári, en þá ætlar Ásdís Ragna að kenna okkur smávegis í smyrslagerð líka.
Góður dagur, skemmtileg samvera og holl útivera! Reykjanesið er besta útivistarsvæðið.abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-28171774938971996992009-05-29T11:14:00.002+00:002009-05-29T11:21:25.760+00:00StjórnmálÉg veit ekki hvað ég er að hugsa. Það er svo margt sem fer í gegnum hugann. Nú er búið að hækka bensín og brennivín. Það má til sanns vegar færa að allir geti dregið saman á þeim vettvangi, hitt er annað að með þessari hækkun hækka líka öll lán og það hjá öllum. Það er svo ósanngjarnt, því neysluskattur er sanngjarn, en ekki þegar hann hleypur inná vísitöluna og hækkar í leiðinni önnur útgjöld, þar sem fólk hefur ekki val.
Samt hugsa ég um aðra hluti líka, en um daginn heyrði ég konu segja að hún ætlaði að kaupa ákveðin hlut þegar hún fengi útborgun af séreignasparnaði sínum þegar hún kæmi heim frá útlöndum um miðjan júní. Ég hugsaði mitt, er þetta ástæða til að taka út séreignasparnaðinn? Erum við Íslendingar alveg ófær um að aga okkur sjálf, ófær um að spara? Ófær um að neita okkur um eitthvað?
Spyr sá sem ekki veit!abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-6786345549579731352009-02-26T10:48:00.001+00:002009-02-26T10:53:16.601+00:00keppni í balletVar í gærkvöldi á virkilega skemmtilegri sýningu, sem var keppni í ballet dansi. Þar var auðvitað fremst meðal jafningja hún dótturdóttir mín Hrund. Því miður komst hún ekki í vinningsliðið, en okkur afa þótti hún skila frábærum dansi, svo ótrúlega mjúk og létt, það var eins og hún svifi um sviðið. Ég gat ekki merkt neina taugaveiklun hjá henni, brosandi og örugg að sjá.abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-29051276603411544012009-01-25T09:55:00.003+00:002009-01-25T10:08:53.357+00:00Góðir íslendingar!Þetta er svo flott ávarp!
Nú eru sögulegir tímar. Komandi kynslóðir munu vísa í Búsáhaldabyltinguna, sem braut á bak aftur staðnað og óréttlátt feðraveldi hins unga lýðveldis Íslands. Lýðveldið Ísland er aðeins 65 ára og hefur gengið sér til húðar, þar sem óreiðumenn fengu að eyða og sóa fé landsmanna til eigin hagsmuna og gróða. Þeir hafa fengið að fara með mannorð okkar þannig að flestir íslendingar fyrirverða sig fyrir þjóðerni sitt!
En það er von! Nýtt lýðveldi, er heiti á samtökum, sem þó nokkrir hafa komið á laggirnar. Þeirra hugmyndir eru að hér skuli komið á Neyðarstjórn til að stýra þjóðaskútunni yfir boðaföllin næstu mánuði og misseri. Á sama tíma verði hópur manna valin til að endurskoða stjórnarskrá Íslands sem mikil þörf er á, þar sem margir gallar eru á þeirri sem notast hefur verið við í þessi 65 ár án nokkurra verulegra breytinga.
Þar á að leggja áherslu á að landið verði eitt kjördæmi (öll atkvæði hafi jafnt vægi), að ráðherrar séu ekki einnig alþingismenn og þeir mega ekki sitja í nefndum og ráðum útum allann bæ eins og nú tíðkast.
Ég trúi því að mikill meirihluti þjóðarinnar sé hlynntur þessum hugmyndum og ég hvet alla til að fara inná vef þessara samtaka nyttlydveldi.is og kynna sér það sem þar er krafist og helst af öllu skrifa undir áskorunina!
Heill og hamingja leiði okkur næstu mánuði, áfram Íslandabelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-80959518553386664642009-01-24T20:18:00.001+00:002009-01-24T20:19:50.382+00:00hvíti borðinnÉg var að hugsa um að flagga hvítum fána næstu daga með appelsínugulu ívafi.abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-21261258923936832822009-01-24T17:53:00.002+00:002009-01-24T18:01:37.799+00:0016. fundurinnÉg græt næstum, því ég gat ekki verið á fundinum í dag. Ég var svo sannarlega með í huga og ekki skemmdi fyrir að fá að hlusta á fundinn í beinni á rás 2. ÉG græt líka næstum yfir því hve margir mættu (það var gleiðigrátur) og svo fékk ég beint í æð frá Bjarneyju (sms) hve stemmningin væri góð. En bakverkir og þreyta eftir erfiða nótt (svaf illa fyrir verkjum) hömluðu mér frá að vera með í dag. Það var mjög erfitt.
Ég hef sagt að ég er appelsínugul, því ég vil ekki beita ofbeldi né dónaskap gagnvart fólki, það er í lagi að steyta hnefa og hrópa, slá saman pottum og pönnum, en að vera með ógnandi tilburði gagnvart fólki, þar kemur að mínum mörkum!
Ég er líka hvít, því samtökin fyrir nýju lýðveldi skreyta sig með hvítum borða og ég ætla að lýsa yfir skoðun minni á því hve mikilvægt er að nú verði hreinsað til í stofnunum landsins og ný stjórnarskrá samin, með því að skarta hvítum borðum. Ný stjórnarskrá, neyðarstjórn sett á laggirnar strax og stjórnum fjármálastofnana komið undir neyðarstjórnina strax! Áfram Ísland!abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-74912170667688026642009-01-22T09:53:00.002+00:002009-01-22T09:55:10.686+00:00AppelsínugulurVerum í einhverju appelsínugulur (sá litur passar mér engan veginn, en ég læt mig hafa það) næstu daga, tökum ekki þátt í ofbeldi, ögrum ekki yfirspenntri lögreglu.
Mætum í mótmæli, en höfum bara hátt.abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-80290881676678276602009-01-22T09:39:00.002+00:002009-01-22T09:47:52.740+00:00Njarð- víkingar?Í dag er ég afar spennt fyrir framtaki Njarðar P. Njarðvík og Ólínu Þorvarðardóttur um nýja hugsun fyrir næstu framtíð. Ég hvet lesendur mína til að fara inná bloggið hennar Ólínu og þar er komið inná helstu atriði um hugsanlega lausn mála.
Það verður blaðamannafundur í dag og í dag verður opnuð síða þar sem fólk getur skráð sig inn til samþykktar tillögunum. Skoðið þetta!

Ég ætla líka að lýsa yfir leiða mínum yfir hvernig fólk er að taka þessi friðsamlegu mótmæli og snúa þeim í skömm. Það er að mínu mati alveg óverjandi að ráðast á fólk með ofbeldi og líkamsmeiðingum. Mér fannst alveg óþolandi að sjá aðförina að Geir og hans mönnum, sem og ofbeldi gegn lögreglunni.
Það má hafa hátt, henda snjó og eggjum (betra samt að éta þau), syngja, gaula, klappa. Því fleiri sem mæta og gera slíkt, því meiri áhrif, sem virðast nú vera að skila árangri. Það er ekki ofbeldið sem skilar árangri, það er fjöldinn sem mætti á þriðjudag með hávaðann! Því fleiri því betra.abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-84863527092158901192009-01-20T21:15:00.002+00:002009-01-20T21:29:11.419+00:00Fyrsti dagur mótmæla 20.jan 2009Fórum á mótmælafundinn í dag og vorum mætt á Austurvöll um kl 13. Þar var töluvert stór hópur mættur og margir með hristur og flautur. Mér fannst stemmningin strax mögnuð og eitthvað í loftinu. Það bættust stöðugt fleiri og fleiri í hópinn og fjölbreyttni ásláttartækja varð meiri. Það var skemmtilegt að vera þarna, einstaka þingmenn sáust í gluggum á efri hæð Alþingishússins og gat ég þekkt þar m.a. Bjarna Ben og Sigurð K, Höskuld Þórhalls, Magnús Stefáns og einhverja fleiri.
Ég sá eftir því að hafa ekki tekið með mér pottlok og sleif, hávaðinn magnaðist og bættist heldur betur í þegar sjálfur Sturla Jónsson kom með þennan líka loftlúðurinn, það var gaman og samtaka tilfinningin jókst.
Okkur fannst reyndar furðulegt þegar við komum þá var búið að strengja borða lögreglunnar fyrir Alþingishúsið og við skildum ekki hvers vegna? Okkur fannst þetta vera ögrun lögreglunnar við fólkið sem hafði mætt þarna 15 laugardaga í röð og allt í einu var komin borði þar sem okkur var bannað að koma nálægt húsinu. Ég skil ekki tilganginn og tel að þetta hafi aðeins gert fólk pirrað. Margir reyndu að komast innfyrir en löggan stoppaði þá af. Skyndilega var samt opnað og fjöldinn gekk af stað vinstra megin við Alþingishúsið, þ.e. á milli þess og Dómkirkjunnar. Ég hélt að þetta væri eitthvað planað sem einhver ganga og flaut áfram með straumnum, en sá þegar ég kom fyrir hornið að þarna var aðeins verið að æsa leika milli löggu og yngri mótmælenda. Það var verið að stugga við fólki og því meinað að fara inní garðinn. Það var annað atriði sem við ræddum okkar í milli að væri óþarfi og þarna væri verið að ýkja hættuna, okkur fannst að það væri allt í lagi að banka í glugga Alþingis, við vorum þarna komin til að trufla þingfundi og það með því að skapa hávaða.
Við fórum þegar klukkan var rúmlega 13:30 því við höfðum skyldum að gegna sem við gátum ekki sleppt, en okkur dauðlangaði að vera lengur og virkilega sýna hve margiir eru mótmæltir þessari ríkisstjórn og valdhöfum öllum. Við ætlum að mæta aftur á morgun.abelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-6752962797252080954.post-8223137201726047362009-01-02T11:13:00.002+00:002009-01-02T11:23:30.169+00:00Iceland Express og IcelandairGleðilegt ár!
Ég er enn að kyngja því að ég þurfi að borga 125.311 íslenskar krónur fyrir að bjóða syni mínum og sonarsyni heim um áramótin með Iceland Express. Fargjald frá Köben til Kef fyrir 1 fullorðin og 6 ára gamalt barn og til baka. Skýring flugfélagsins er sú að þetta sé gjaldið þar sem hann hafi pantað það 13.des og þá hafi bara dýru sætin verið eftir. Er þetta eðlilegt?
Hvar er samkeppnin? Eða er þetta bara sama gamla sagan að alltaf séu íslendingar sem búa í útlöndum píndir um jól og áramót þegar heimþráin er í hámarki?
Við hjón flugum til Dk via Oslo um jólin og borguðum 60 þús með Icelandair og sonarsonur flaug til DK um áramót fyrir rúml 30 þús kr með Icelandair (djöf...leiðist mér að nota þetta nafn) og má segja að það sé sanngjarnt verð, en 125 þús?
Enda því ættum við að búast við samkeppni þegar sömu aðilar eiga bæði flugfélögin. Það er svo dásamlegt að vera íslendingur!
Gleðilegt ferðaár kæru landarabelinahuldahttp://www.blogger.com/profile/03660822099559536698noreply@blogger.com1